VENDINÁM - FLIPPED LEARNING
  • Hvað er vendinám?
  • Flippari ársins
  • Vendinetið

Íslensku vendinámsverðlaunin - Flippari ársins 2017

Picture
Picture
Á tíu ára afmæli Keilis veitti skólinn viðurkenningu fyrir þann kennara sem hefur skarað framúr í innleiðingu vendináms (flipped learning) og nýrra kennsluhátta. Viðurkenningin sem Flippari ársins féll í skaut Ívars Valbergssonar, kennara í vélstjórn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
 
Jon Bergmann, einn af upphafsmönnum Flipped Learning í Bandaríkjunum, tilkynnti um valið á afmælishátíð Keilis í Andrews Theater á Ásbrú þann 4. maí 2017. Ívar hefur verið ötull talsmaður vendináms og er frumkvöðull í innleiðingu þeirra í verk- og iðnnámi ekki bara á Íslandi heldur á heimsvísu, og er hann verðugur handhafi þessarar viðurkenningar. 
 
Keilir mun framvegis veita þessa viðurkenningu árlega fyrir þá kennara og skólastofnanir sem hafa skarað framúr í innleiðingu vendináms í skólastarfi. ​

Keilir - Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs

Grænásbraut 910
235 Reykjanesbær
Sími: 578 4000
© COPYRIGHT 2015. ALL RIGHTS RESERVED.
  • Hvað er vendinám?
  • Flippari ársins
  • Vendinetið